Árlega Kraftsblaðið er nú komið út og að þessu sinni er það stútfullt af einlægum sögum, fræðslu og umfjöllun sem veitir innsýn í líf ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og þeirra sem standa því næst.
Meðal efnis í blaðinu eru áhrifamikil viðtöl við fólk sem deilir reynslu sinni af greiningu, meðferð og lífinu eftir krabbamein. Þar má meðal annars nefna Hrafnhildi, sem greindist með sortuæxli aðeins 25 ára gömul og segir opinskátt frá óttanum, skömminni og sambandi sínu við sólina. Einnig segir Ísak Eldjárn frá vegferð sinni þar sem hann sigraðist á bæði fíkn og krabbameini með skömmu millibili, og Björg Gunnarsdóttir deilir sögu sinni af því að greinast með eggjastokkakrabbamein þegar lífið tók óvænta stefnu.
Í blaðinu er jafnframt fjallað um mikilvæg málefni sem snerta ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þar má nefna umfjöllun um frjósemisvarðveislu, hollráð fyrir aðstandendur, heilsulæsi í krabbameinsmeðferð, mataræði og krabbamein, fjárhagslegan stuðning Krafts og mikilvægi skimunar. Þá er einnig farið yfir starfsemi félagsins, Perlað af Krafti, Aðstandendakraft, Kröftuga kvennastund og fleiri verkefni sem skipta félagsfólk miklu máli.
Sérstaklega er fjallað um vitundarvakninguna „Berum armbandið“, þar sem félagsfólk og aðstandendur segja frá því hvað hið táknræna armband hefur þýtt fyrir þau og hvernig samstaða samfélagsins getur skipt sköpum þegar mest á reynir.
Við hvetjum ykkur til að gefa ykkur tíma til að glugga í blaðið og kynnast þeim sögum, verkefnum og baráttumálum sem móta starf Krafts á hverjum degi.
Blaðinu verður dreift á N1 stöðvar víða um land og einnig verður það aðgengilegt á fjölmörgum heilbrigðisstofnunum.
Útgáfa blaðsins væri ekki möguleg án þeirra fyrirtækja, samstarfsaðila, viðmælenda og sjálfboðaliða sem lögðu verkefninu lið. Við færum þeim öllum okkar bestu þakkir.
Ritstjóri:
Eva Sigrún Guðjónsdóttir
Ritstjórn:
Eva Sigrún Guðjónsdóttir
Guðný Sara Birgisdóttir
Sólveig Ása Tryggvadóttir
Umbrot:
Hrefna Lind Einarsdóttir
Forsíðuljósmynd:
Laimonas Dom Baranauskas, Sunday & White Studio
Prentun:
Prentmet Oddi ehf.