Skip to main content

Lífið er núna Festival í janúar

By 11. desember 2018mars 25th, 2024Fréttir

Kraftur verður 20 ára á næsta ári og af því tilefni munum við halda Lífið er núna Festival á Hótel Hilton laugardaginn, 12. janúar. Um er að ræða fyrsta viðburð sinnar tegundar hér á Íslandi en þetta er sannkölluð veisla þar sem við verðum með vinnustofur um daginn og partý um kvöldið.

Það verða ýmsar vinnustofur um daginn og þú getur valið t.d.:

  • Spuni með Improv Ísland
  • Gong og streitulosun frá Jógasetrinu
  • Fítonsæfing með leynigesti
  • Fyrirlestur um jákvæða sálfræði og húmor með Helgu hjá Happ App
  • Núvitundarnámskeið frá Núvitundarsetrinu
  • Dans með Háskóladansinum
  • Sjálfstyrking með KVAN
  • Og fleira

Ekki má gleyma að við verðum svo með þrusu partý um kvöldið þar sem við bjóðum upp á fordrykk og mat og ýmsir tónlistarmenn munu stíga á stokk.
Við munum senda skráningarpóst á vinnustofurnar síðar í desember en til að tryggja þér pláss þá þarftu að skrá þig núna og borga smá staðfesingargjald (2500 kr.) en Festivalið er annars þér að kostnaðarlausu. Þau sem búa út á landi munu meira að segja fá ferðastyrk og gistingu á Hilton sér að kostnaðarlausu.

Nú þarftu bara að skrá þig til að tryggja þér sæti