Aðalfundur Krafts verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Stefnumótunarvinna kynnt.
- Lagabreytingar.
- Kjör tveggja manna í stjórn til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
- Kjör formanns til tveggja ára.
- Kjör þriggja fulltrúa í stjórn Neyðarsjóðsins.
- Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Önnur mál.Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.
Óskað er eftir framboðum til stjórnar samkvæmt dagskrá. Sem fyrr segir er óskað eftir tveimur aðalmönnum í stjórn og tveimur varamönnum.
Einnig er kosið til formanns til tveggja ára.
Framboð skulu berast til framkvæmdastjóra á netfangið hulda@kraftur.org þar sem fram kemur nafn, kennitala og upplýsingar um viðkomandi. Framboð skulu berast eigi síðar en fös 26.apríl.
Við hvetjum alla félagsmenn til að fjölmenna á aðalfund félagsins.