Kæru félagar og velgjörðarmenn
Samkvæmt ráðleggingum frá Landlækni bendum við ykkur sem dvalið hafa á skilgreindum áhættusvæðum sem Kórónaveiran hefur greinst, að mæta ekki á viðburði hjá félaginu eða koma í heimsókn þar til 14 dögum eftir heimkomu. Það á við um viðburði hjá félaginu sem og perluviðburði.
Við fylgjumst vel með tilkynningum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknis um stöðu mála og gerum allt hvað við getum til að tryggja að félagsmönnum Krafts stafi sem minnst hætta af veirunni.
Fólk í krabbameinsmeðferð er oft á ónæmisbælandi lyfjum og því þurfum við að gæta hinsta öryggis.