Vilt þú nýta krafta þína til góðra verka?
Kraftur leitar að áhugasömu og kraftmiklu fólki í stjórn félagsins sem hefur hjarta fyrir málstaðnum. Ef þú vilt hafa áhrif og taka þátt í uppbyggingu okkar frábæra félags þá er um að gera að senda inn framboð þitt.
Við óskum eftir framboðum til stjórnar. Einum aðalmanni í stjórn til tveggja ára og tveimur varamönnum til eins árs.
Einungis félagsmenn í Krafti geta gefið kost á sér til stjórnarsetu.
Frekari upplýsingar veitir Hulda, framkvæmdastjóri á netfanginu hulda@kraftur.org
Með framboðinu þarftu að tilgreina nafn, kennitölu, upplýsingar um þig og af hverju þú villt gefa kost á þér til stjórnarsetu í Krafti.