Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, leitar að drífandi og skemmtilegum einstaklingi sem hefur hjarta fyrir málstaðnum í 80% – 100% starf fræðslu- og hagsmunafulltrúa félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á fræðslustarfi félagsins
- Hagsmunagæsla fyrir unga krabbameinsgreinda einstaklinga og aðstandendur
- Skipulagning og utanumhald um fræðslustarf félagsins
- Umsjón með fræðsluvef og fræðslu á samfélagsmiðlum
- Umsjón með fræðslustarfi hvers kyns útgáfu á vegum Krafts, t.a.m. fræðslu- og kynningarefni
- Almenn upplýsingagjöf til félagsmanna
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti krafa
- Góð enskukunnátta
- Þekking og reynsla af hagsmuna- og fræðslumálum kostur
- Góð almenn tölvufærni, þekking og reynsla af samfélagsmiðlum og vefumsjón kostur
- Hjarta fyrir málstaðnum
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
- Skilvirkni og nákvæm vinnubrögð
- Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni