Önnur ganga gönguhópsins Að klífa brattann í maí, verður laugardaginn 28. maí kl. 11:00
Hvetjum alla félagsmenn að fjölmenna í göngurnar og taka með sér fjölskyldu og vini
Við leggjum bílunum á stæði við Kaldárselsveg, þar sem við hittumst áður en við höldum í hann
Frábær ganga sem ætti að henta flestum en huga þarf vel að skóbúnaði og fyrir suma væri gott að hafa meðferðis göngustafi.
Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér svo við getum áætlað fjöldann, því við viljum ekki skilja neinn eftir
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Einnig eru göngurnar kjörinn vettvangur í undirbúning fyrir gönguna okkar yfir Fimmvörðuhálsin í sumar 😃
Atli (sími: 663-2252)
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.