
Sýnum Kraft og samstöðu í verki og sláum í leiðinni Íslandsmet í perli? Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra, ætlar að perla ,,Lífið er núna” armbönd sunnudaginn 25. janúar í Hörpu í tilefni af vitundarvakningu félagsins.
Perlað verður nýtt ,,Lífið er núna” armband sem fer í sölu núna í janúar og er hluti af árlegu fjáröflunar- og vitundarvakningu Krafts.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.