Alþjóðlegur dagur krabbameins

By 4. febrúar 2026Fréttir

Í dag, 4. febrúar, er Alþjóðadagur krabbameina haldinn um allan heim. Deginum er ætlað að sameina samfélög um allan heim í baráttunni gegn krabbameini. Í ár er lögð áhersla á að, þó upplifun hvers og eins af krabbameini sé einstök, þá erum við öll sameinuð í sameiginlegri baráttu fyrir betri þjónustu, stuðningi og lífsgæðum.

Á Íslandi greinast um 2.000 manns með krabbamein árlega, þar af um 90 einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára. Þessi hópur stendur oft frammi fyrir sérstökum áskorunum tengdum námi, starfi, fjölskyldulífi og framtíðaráformum. Meginmarkmið Krafts er að styðja við þennan hóp með því að skapa félagsfólki öruggt rými til að segja sína sögu í hópi jafningja, með virkri réttinda- og hagsmunagæslu, ásamt því að veita fjárhagslegan stuðning og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra sem tengjast sjúkdómnum. 

En krabbamein hefur ekki einungis áhrif á þann sem veikist heldur allt nærumhverfi þess greinda. Þar má nefna börn, maka, foreldra, systkini, vini og vinnufélaga. Aðstandendur krabbameinsgreindra eru oft undir miklu álagi og getur stuðningur og fræðsla bætt lífsgæði allra í fjölskyldunni. Þess vegna leggur Kraftur áherslu á að mæta aðstandendum með jafningjastuðningi og fræðslu. 

Krabbamein er ekki bara líkamleg greining, það er persónuleg lífsreynsla. Að baki hverri greiningu er einstök saga sem á skilið á fá rými, saga um ótta, styrk, von og seiglu. Þess vegna skiptir einstaklingsmiðuð nálgun, byggð á samkennd og skilningi, sköpum fyrir líðan og lífsgæði þeirra sem krabbamein snertir.

Krabbamein kemur öllum við!