Kraftur er stoltur stuðningsaðili nýs hlaðvarps, ætlað krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra. Félagskona Krafts og jafnframt aðstandandi krabbameinsgreinds einstaklings, Birna Kristín Hrafnsdóttir hefur nú þegar gefið fyrsta þáttinn út. Þar talar hún við Örnu Katrínu sem þekkir það að eiga maka sem veikist af krabbameini. Fleiri þættir eru á leiðinni og það er óhætt að mæla með hlustun á þessu faglega verkefni sem Birna heldur utan um. Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify og Apple Podcasts.