| Kröftug strákastund, húmor & harmur, páskabingó, troðfull dagskrá að baki
Takk fyrir góðar þátttöku á viðburðum mánaðarins. Mánaðarlegt flot, stelpuKraftur, strákaKraftur var allt á sínum stað í mars. Mjög góð mæting á fræðsluerindi fyrir allt félagsfólk sem Edda Björgvinsdóttir, verndari Lífið er Núna armbandsins hélt.
Það var gleðilegt að sjá húsið fyllast af félagsfóki og fjölskyldum þeirra á árlegu páskabingói Krafts. Staður, stund og stemming í húsakynnum Krabbameinsfélagsins þar sem Kraftur hefur aðstöðu. Félagsfólk og afleggjarar glöddust yfir bingó spili, andlitsmálningu og ljúffengum veitingum frá Lemon. Það er gaman að segja frá því að bingóstjórinn okkar kynntist Krafti sem ungur aðstandandi – hún hefur fylgt félaginu í mörg ár og aðstoðað með ýmsum hætti.
Það var ekki síður gleðilegt að sjá allan þann fjölda karlmanna koma saman á kröftugri strákastund, fimmtudaginn 26. Mars. Þar miðluðu reynslumiklir herrar sinni upplifun af því að fást við krabbamein sem og að vera aðstandandi. Að loknum erindum þáðu gestir veitingar og spiluðu golf, en viðburðurinn var haldinn í Golfhöllinni út á Granda
Endurnærandi helgi fór síðan fram síðustu helgina í mars. Félagsfólk kom saman í Eirð retreat þar sem dekur, góð samvera og súrefni einkenndi helgina. Dásamleg helgi að baki. |