
Við hjá Krafti erum einstaklega stolt af því að endurnýja samstarfið við Apótekarann. En í sjö ár hefur Apótekarinn niðurgreitt lyfjakostnað fyrir félagsfólk Krafts. Það er mikilvægt fyrir félagið að geta boðið upp á fjölbreyttar þjónustuleiðir og er lyfjakort Krafts ein mest nýtta leið okkar félaga. Með samningnum bætum við einnig aðgengi okkar félaga á landsbyggðinni.
,,Kraftur og Apótekarinn hafa skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning en undanfarin sjö ár hefur Apótekarinn niðurgreitt lyfjakostnað fyrir félagsfólk Krafts. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein á aldursbilinu 18–40 ára og aðstandendur.
Samkvæmt Sólveigu Ásu Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krafts, hefur það margvísleg áhrif á líf fólks að fá krabbameinsgreiningu.
Það er til að mynda kostnaðarsamt og þá sérstaklega fyrir ungt fólk sem þarf oftar en ekki að standa í stórum útgjöldum yfir æviskeið.
Til viðbótar við hefðbundið lyfjakort mun Apótekarinn hefja sölu á armböndum sem framleidd eru af sjálfboðaliðum Krafts og renna beint í starfsemi félagsins.
„Lyfjakortið er mest nýtta þjónusta félagsins en í hverjum mánuði eru 70 ungar manneskjur sem leysa út lyf, þeim að kostnaðarlausu. Með endurnýjuðum samningi býðst félagsfólki nú að leysa lyfin sín út frá 27 útibúum Apótekarans, sem eykur á aðgengi og þjónustu, og þá sérstaklega fyrir fólkið okkar á landsbyggðinni,“ segir Sólveig Ása.
Aðalbjörg Eggertsdóttir, markaðs- og sölustjóri Apótekarans, segir að samstarfið hafi jafn mikilvæga þýðingu fyrir Apótekið.
„Samstarfið hefur verið farsælt og lyfjakortið reynst ungu fólki vel sem er að herja sína baráttu við krabbamein. Öll apótekin okkar starfa nú undir sama vörumerki og munu því skjólstæðingar Krafts geta nýtt lyfjakortið á enn fleiri stöðum og fengið góða þjónustu hjá okkar apótekum.“