Vorúthlutun úr styrktarsjóði Krafts 2026: Aldrei fleiri hlotið styrk

By 4. maí 2026Fréttir

Aldrei hafa fleiri þegið stuðning úr styrktarsjóði Krafts, en á dögunum var 11 einstaklingum úthlutað fjárhagslegum styrkjum frá félaginu.

„Það getur verið gríðarlega kostnaðarsamt að greinast með krabbamein og því er það okkur ljúft og skylt að styðja við bakið á félagsfólkinu okkar sem þarf á því að halda“ segir í tilkynningu frá Krafti.

Úthlutunarnefnd styrktarsjóðsins, sem skipuð er af stjórn Krafts, fer yfir umsóknirnar og metur þær. Í vorúthlutun fengu 11 af 13 úthlutað styrki. Félagið þakkar nefndinni fyrir vinnuna sem lögð var í verkefnið.

Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti, og er sjóðurinn ein af lykilstoðum í stuðningsstarfi félagsins. Samhliða honum rekur Kraftur meðal annars Óskabrunninn, menntasjóð, frjósemissjóð og aðra sjóði sem veita félagsmönnum fjölbreyttan stuðning.

Frá upphafi hefur Kraftur lagt áherslu á að mæta ólíkum þörfum með fjölbreyttum leiðum. Sú sýn hefur verið drifkraftur í starfinu og endurspeglast í þeim úrræðum sem standa félagsmönnum til boða.

.