Það er okkur sönn ánægja að greina frá fallegu samstarfi Krafts við Eldum rétt.
Árlega greinast um 90 ungir einstaklingar með krabbamein hér á landi og fá þeir afhendan gjafapoka frá Krafti. Gjafapokinn er okkar leið til þess að rétta fram höndina til þeirra sem gætu þurft á stuðningi okkar að halda. Pokinn inniheldur ýmsan varning sem getur nýst nýgreindum í erfiðum aðstæðum, svo sem fræðsluefni, handprjónaða ullarsokka, húfu, freyðitöflur frá Unbroken, húðvörur frá Gamla apótekinu og CeraVe, Storytel gjafabréf og „Lífið er núna“ armband.
Við höfum margoft fengið að heyra að fólk hálfpartinn lamist þegar það greinist með krabbamein og að matarsendingar hafi verið kærkomnar. Hins vegar hafa ekki allir stórt bakland eða mikið á milli handanna. Til að mæta þeirri þörf hefur Eldum rétt bæst í hóp dýrmætra samstarfsaðila og hefur gefið Krafti 90 gjafabréf til þess að setja í gjafapokana.
Við erum þakklát og meyr yfir velviljanum og að geta nú gefið nýgreindum heita máltíð þegar mest á reynir. Við vonum að það komi til með að létta undir <3