Takk fyrir styrktaraðilar!

By 21. ágúst 2026Fréttir

Í Reykjavíkurmaraþoninu 2026 eru fjölmargir sem hlaupa og safna áheitum fyrir Kraft. Á sama tíma eru ótal margir sem heita á hlauparana okkar og styðja þannig við starf Krafts. Fyrir það erum við ótrúlega þakklát.

Ein leið okkar til að þakka öllum fyrir stuðninginn er að birta þakkarorð á „billboard“-skiltum víðs vegar um hlaupaleiðina. Það sem gerir okkur kleift að gera þetta eru okkar yndislegu styrktaraðilar.

Við þökkum ykkur fyrir að hjálpa okkur að þakka fyrir okkur! ❤️