Tár, bros og hlaupaskór á fallegasta degi ársins 🧡🧡🧡
Starfsfólk Krafts bar nafn félags síns með rentu og STUDDI hlaupara sína af KRAFTI í Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðinn laugardag. Kraftur Stuðningsfélag þakkar hlaupurum, hvatningarsveitum og þeim sem styrktu félagið í gegnum hlaupara og auglýsingaskilti innilega fyrir hjálpina.
Dagurinn var uppfullur af jákvæðum tilfinningum – tárum, brosum, faðmlögum, svita og ótrúlegri gleði. Það var magnað að fylgjast með hlaupurum Krafts leggja allt í hlaupið og sjá þá uppskera eins og þeir sáðu. 🧡🧡🧡 Skrif og mynd(ir) fara sannarlega saman 🧡🧡🧡