Styrktarstjóður Krafts – sæktu um fyrir 1. nóv!

By 12. október 2026Fréttir

Sæktu um í styrktarsjóði Krafts fyrir 1. nóvember 🧡🧡🧡 Við vekjum athygli á styrktarsjóði Krafts sem er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og hefur lent í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna. Sjóðnum er ætlað að standa straum af tekjumissi sem getur hlotist af veikindunum og kostnaði sem fellur utan greiðsluþátttöku. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári en umsóknarfrestir eru til og með: 1.apríl og 1. nóvember. Meira um málið hér ➡https://kraftur.org/styrktarsjodur/