Kröftug Kvennastund 2026. Eitt af mikilvægustu verkefnum Krafts er að skapa rými fyrir jafningjastuðning, þar sem fólk í svipaðri stöðu getur speglað sig hvert í öðru og jafnvel gleymt sér í gleði um stund. Reynslusögur félagsfólksins okkar eru okkur líka mikilvægar. Þær veita innsýn, en geta ekki síður orðið öðrum stuðningur, innblástur og styrkur.
Á Kröftugri Kvennastund fengum við að heyra sögur þriggja kröftugra kvenna sem hafa allar upplifað hvernig lífið getur breyst á augabragði við krabbameinsgreiningu, en frá ólíkum sjónarhornum: ein stendur í miðjum storminum, önnur hefur sigrað krabbamein og sú þriðja þekkir aðstandendahlutverkið af eigin raun.
Okkur langar að þakka Sólveigu, Birnu og Fanneyju innilega fyrir hugrekkið og einlægni.
Birnu Rún þökkum við fyrir faglega og skemmtilega veislustjórn, Tónabíói fyrir að lána okkur salinn endurgjaldslaust, Blómstru fyrir blóminm Töst og Ölgerðinni fyrir drykkina og Hjördísi og Instamyndum fyrir að fanga augnablik kvöldsins