„Í dag er ég svo þakklát fyrir að fá að halda jólin með litla strákinn í fanginu“

By 24. nóvember 2026Fréttir

Lovísa Tómasdóttir er móðir, klæðskeri og félagskona hjá Krafti. Þegar Lovísa var gengin 16 vikur með fyrsta barnið sitt greindist hún með ristilkrabbamein. Jólin það ár einkenndust af óvissu, sorg og erfiðum tilfinningum. Í dag er Lovísa laus við meinið og þakklát fyrir að ganga hraust inn í hátíðirnar.

Við fengum Lovísu til að deila með okkur sýn sinni á jólin.

Hvernig voru jólin fyrir tveimur árum, þegar þú greindist?

Ég greindist rétt fyrir jólin 2024 og var þá komin um 16 vikur á leið. Þetta voru svo skrítin jól. Það var mikil óvissa og náttúrulega mikil sorg. Þetta var einfaldlega erfitt og maður átti svolítið erfitt með að komast í einhvern hátíðargír það árið.

Hvað merkja jólin fyrir þig í dag?

Mér finnst svo magnað að hugsa til þess að í dag fái ég að halda jólin með litla strákinn minn í fanginu. Ég er svo stútfull af þakklæti.

Þegar ég hugsa um jólin núna er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að fá að eiga samverustundir með honum og fjölskyldunni. Það er kannski einmitt það sem mér finnst jólin snúast um – samvera með þeim sem maður elskar.

Hefur sýn þín á jólagjafir og jólahaldið breyst?

Ég hef verið á ákveðinni vegferð og finnst mikilvægt að jólin snúist ekki bara um neyslu þegar kemur að því að kaupa gjafir. Ég vil að það sé meiri hugsun og gildi á bak við þær.

Mér finnst til dæmis mikilvægt að óskalisti minn sé samsettur úr vörum frá verslunum hér heima og að þær jólagjafir sem ég kaupi séu líka frá íslenskum verslunum.

Svo finnst mér dásamlegt að fá eitthvað handgert frá íslensku listafólki. Mér finnst orðið mjög mikilvægt að styðja við okkar fólk hér heima.

Hvað er efst á óskalistanum þínum í ár?

Á óskalistanum mínum er einfaldlega samvera við kertaljós.

Það er hægt að gefa kerti með þeirri ósk að eiga notalega samverustund með einhverjum sem manni þykir vænt um. Hér hjá Krafti er til dæmis ofboðslega gott kerti með einstaklega góðri og jólalegri lykt.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla!