„Við fáum bara eitt líf og einn líkama“

By 27. nóvember 2026Fréttir

Við vorum svo heppin að fá Erik, stjórnarmann hjá Krafti til okkar í spjall um lífið og tilveruna í aðdraganda jóla.💝🎄🎁
Erik gegnir mörgum hlutverkum í lífinu, hann er eiginmaður, faðir og mannauðsstjóri, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur hann sjálfur mikla reynslu af því að vera aðstandandi. Hann hefur bæði upplifað missi í æsku þegar faðir hans lést úr krabbameini og árið 2023 greindist eiginkona hans síðan með bráðahvítblæði..

Hvernig kynntist þú Krafti og hvernig kom það til að þú varðst hluti af félaginu?

Ég kynntist fyrst og byrjaði að fylgjast með Krafti fyrir mörgum árum þegar vinkona mín var að vinna þar og ég var strax heillaður af því flotta starfi sem var þar augljóslega unnið. Kraftur veitir framúrskarandi og fjölbreytta þjónustu og áhrif félagsins í samfélaginu er ótrúlega víðtæk svo það var með miklu stolti sem ég tók sæti í stjórn félagsins fyrr á árinu.

Krabbamein hefur haft mikil áhrif á líf Eriks, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Hann þekkir því vel raunir aðstandenda.

Viltu segja okkur aðeins frá þinni reynslu af krabbameini og hvernig hún hefur mótað þig?

Það má segja að krabbamein hafi verið stór og mjög áhrifamikill hluti af mínu lífi. Pabbi minn lést úr krabbameini þegar ég var 6 ára gamall sem mótaði æskuna mína og uppeldi mikið, og núna árið 2023 greindist konan mín svo með bráðahvítblæði sem hefur umturnað lífi okkar fjölskyldunnar og þar hef ég auðvitað kynnst hlutverki aðstandanda betur en ég kæri mig um. Að upplifa erfiðleikana, áföllin og sorgina sem fylgir veikindum sem þessum er mjög mótandi og krefjandi lífsreynsla en á sama tíma er svo margt fallegt sem kemur út úr henni. Maður hefur lært það að taka heilsunni og fólkinu sínu ekki sem sjálfsögðum hlut og sinna því vel, vera þakklátur fyrir allt það góða í lífinu manns, en líka að brynja sig miklu betur fyrir stressi og að vera ekki að hafa áhyggjur af hlutum sem skipta engu máli í stóra samhenginu. Við fáum bara eitt líf og einn líkama.

Hvað eru jólin fyrir þér?

Jólin fyrir mér eiga að snúast fyrst og fremst um samveru með fólkinu sem stendur þér næst en líka að ná góðri ró og slökun því þetta á jú að vera frí. Ég gleymi aldrei fyrstu jólum okkar fjölskyldunnar eftir að konan mín veiktist en þó að það hafi verið mjög krefjandi tími í okkar lífi þá var á sama tíma eitthvað svo frelsandi við það að upplifa jólin án allrar pressunar sem þeim geta fylgt. Að þurfa ekki að elda fullkomnu máltíðina, taka fullkomnu fjölskyldumyndina, hafa heimilið skreytt og hreint upp á tíu, skrúfa efnishyggjuna og gjafirnar í botn og svo framvegis, heldur bara vera þakklát fyrir samveruna og stundirnar saman, sem við gátum svo sannarlega verið. Við höfum reynt að taka það hugarfar með okkur inn í jólin síðan þá og hafa þetta með sem afslappaðasta hætti.

Ertu með einhverja sérstaka jólahefð sem þú gætir ekki hugsað þér að sleppa?

Jólaísinn hennar mömmu er geitin og honum vil ég aldrei sleppa.

Svo hef ég ferlega gaman af árlega jóla/spilakvölds/djammi okkar frændsystkinanna og maka á öðrum í jólum þar sem gleði og keppnisskap ráða ríkjum. Það eru jólin í hámarki.

Hvað er efst á óskalistanum þínum þessi jólin?

Við fjölskyldan höfum annarsvegar lagt áherslu á að gefa upplifanir sem er hægt að gera saman síðustu ár til að bæta í minningarbankann, og hinsvegar eitthvað fyrir fallegan málstað. Ætli ég væri ekki til í eitthvað huggulegt út að borða með mínu besta fólki og svo myndi ég mjög gjarnan vilja sjá mitt fólk kíkja á vefverslun Krafts og kaupa kerti og spil fyrir jólin.