Svefninn er jafn mikilvægur fyrir andlega og líkamlega vellíðan einstaklingsins og matur og hreyfing. Svefnvandamál eru ekki óalgeng hjá þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum. Truflun á svefni getur varað í nokkra mánuði eða jafnvel mörg ár eftir greiningu. Orsakir fyrir truflun á svefni geta verið bæði andlegar, líkamlegar, blanda af hvoru tveggja eða hreinlega slæmar svefnvenjur.
Leiðir að góðum svefni
- Grundvallaratriði er að forðast allt áreiti fyrir svefninn.
- Svefnherbergið á að vera dimmt og hljótt og aðeins á að nota það fyrir hvíld, svefn og kynlíf.
- Það sem getur truflað svefninn er kaffi, te, koffín- og orkudrykkir, áfengi og nikótín.
- Ekki vera með sjónvarp, síma eða tölvu í svefnherberginu.
- Forðastu að drekka of mikið fyrir svefninn eða borða of þungan mat.
- Athugaðu að hafa þægilegan hita í herberginu og fara að sofa alltaf á svipuðum tíma.
- Mikilvægt er að fá einhverja hreyfingu yfir daginn.
- Það getur reynst vel að skrá svefnvenjur til að sjá hverju þarf að breyta.
- Gott er að fara í rúmið þegar þreytan kallar og fara fram úr ef þú nærð ekki að sofna. Oft er það þannig að því meira sem þú reynir að sofna því erfiðara verður það.af
- Reyndu að nota slökunar- og öndunaræfingar fyrir svefn. Á internetinu er mikið af tónlist og æfingum sem hjálpa fólki að slaka á t.d. á Spotify og Youtube og smáforrit eins og Calm og Headspace. Þú getur stillt símann þannig að hann slökkvi sjálfkrafa á sér eftir ákveðinn tíma.
- Sumum finnst gott að sofna með hitapúða.
- Í samráði við lækni er hægt að fá svefntöflur en þær ætti helst að nota í undantekningartilfellum þar sem áhrif þeirra minnka við langvarandi notkun auk þess sem þær geta orðið ávanabindandi með tímanum.