Aurora styrktarfélag hefur árlega síðustu níu árin styrkt hin ýmsu góðgerðarfélög með rausnarlegum hætti. Fulltrúi Krafts, Ragnheiður Davíðsdóttir, mætti fyrir hönd félagsins á stóðhestasýninguna og kynnti félagið við upphaf dagskrárinnar. Þá var Kraftur með kynningarbás í anddyri sýningahallarinnar. Á Landsmóti hestamanna í sumar verður styrkurinn afhentur formlega og mun fulltrúi Krafts mæta á landsmótið í þeim erindum. Við hjá Krafti erum afar ánægð með þennan styrk. Kraftur þakkar Hrossarækt og Auroru styrktarfélagi af alhug þann hlýhug sem birtist í þessum rausnarlega styrk sem kemur sér vel til að halda áfram að styja við bakið á ungu krabbameinsveiku fólki og aðstandendum þess.