Við hjá Krafti ætlum að efla stuðning á landsvísu við unga krabbameinsgreinda og aðstandendur.
Með því að:
- Veita stuðning á öllum tímaskeiðum félagsmanna
- Veita innblástur og vera fræðandi á skapandi hátt
- Sinna landsbyggðinni betur
- Afla fjármagns sem styrkir stuðning og þjónustu
- Vera fagleg og til fyrirmyndar í öllu starfi
- Vera sjálfstæðari og styrkja tengsl við önnur félög.
Gildin okkar
Gildin okkar eru: Stuðningur, lífskraftur, heiðarleiki og jákvæðni.
Stuðningur
- Við brennum fyrir því að styðja við okkar fólk
Lífskraftur
- Við höfum ástríðu, dugnað og vilja til þess að hafa áhrif og ná árangri
Heiðarleiki
- Við erum raunsæ á aðstæður krabbameinsgreindra og aðstandendur
Jákvæðni
- Við gleymum aldrei gleðinni