Aðalfundur Krafts verður haldinn þriðjudaginn 27. apríl í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00. Fundinum verður einnig streymt vegna samkomutakmarkana og er skráning nauðsynleg.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Kjör formanns til tveggja ára.
- Kjör fjögurra manna í stjórn til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
- Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins. Skoðunarmenn reikninga kynntir.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.
Óskað er eftir framboðum til stjórnar samkvæmt dagskrá. Sem fyrr segir er óskað eftir formanni, þremur aðalmönnum í stjórn og tveimur varamönnum.
Framboð skulu berast til framkvæmdastjóra á netfangið hulda@kraftur.org þar sem fram kemur nafn, kennitala og upplýsingar um viðkomandi. Framboð skulu berast eigi síðar en sun. 25.apríl.
Við hvetjum alla félagsmenn til að fjölmenna á aðalfund félagsins hvort sem er í persónu eða rafrænt.