Aðalfundur Krafts 2026 – 22. apríl

By 24. mars 2026mars 30th, 2026Fréttir

.

Aðalfundur Krafts verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 og hefst kl. 17:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
3. Lagabreytingar
4. Kjör formanns og stjórnar
5. Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins og skoðunarmenn reikninga úr hópi félagsmanna
6. Ákvörðun um félagsgjald
7. Önnur mál
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.
Hvetjum áhugasama félagsmenn til að senda fyrirspurn varðandi framboð til stjórnar Krafts á framkvæmdastjóra á netfangið solveig@kraftur.org. Framboð skulu berast eigi síðar en þriðjudaginn 21.apríl 2026.
Hlökkum til að sjá sem flesta félagsmenn á aðalfundi félagsins miðvikudaginn 22. apríl