Hjalti Einarsson var áttræður á dögunum og afþakkaði allar gjafir og óskaði eftir því að gestir myndu styrkja Kraft þess í stað. Hans afmælisgjöf var því að styrkja Kraft.
Hjalti Einarsson stofnaði VHE – Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf árið 1971 ásamt eiginkonu sinni Kristjönu G. Jóhannesdóttur. Á myndinni má sjá hann og dóttir hans, Hönnu R. Hjaltadóttir, sem komu og afhentu okkur styrkinn en samtals söfnuðust 235.306 kr.
Við þökkum Hjalta fyrir velvilja hans í garð félagsins og hjálpa okkur að hjálpa öðrum. Það er vegna fólks eins og Hjalta að Kraftur getur staðið við bakið á félagsmönnum sínum. TAKK FYRIR ÞIG og til hamingju með stórafmælið <3