Skip to main content

Bjóðum nýja stjórn velkomna til starfa

By 28. apríl 2021Fréttir

Þrátt fyrir samkomutakmarkanir náðist að halda aðalfund félagsins sem var að þessu sinni bæði haldinn í raunheimum og stafrænum heimum. Að venju var farið yfir hefðbundin aðalfundarstörf og starfsár stjórnar sem var mjög óvenjulegt að miklu leiti vegna heimsfaraldurs sem hefur verið að hafa áhrif á daglegt líf okkar.

Þá var ný stjórn kjörin þar sem kosnir voru fjórir fulltrúar í aðalstjórn og þrír í varastjórn, ásamt því að kjörinn var formaður til tveggja ára.

Elín Sandra Skúladóttir núverandi formaður gaf kost á sér til formanns til næstu tveggja ára og var kosin einróma. Þá voru fimm núverandi stjórnarmeðlimir sem gáfu kost á sér að nýju og tveir nýir aðilar sem gáfu kost á sér í stjórn félagsins. Við bjóðum velkomin til leiks Guðna Þór Jóhannsson (aðalstjórn) og Súsönnu Sif Jónsdóttir (varastjórn).

Við þökkum fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir óeigingjarnt starf þeirra í þágu félagsins en það eru Stefán Þór Helgason og Sigríður Þorsteinsdóttir.

Núverandi stjórn Krafts er því eftirfarandi:

  • Elín Sandra Skúladóttir – formaður
  • Arnar Sveinn Geirsson – aðalstjórn
  • Guðni Þór Jóhannsson – aðalstjórn
  • Linda Sæbeg – aðalstjórn
  • Ragnheiður Guðmundsdóttir – aðalstjórn
  • Gísli Álfgeirsson – varastjórn
  • Halla Dagný Úlfsdóttir – varastjórn
  • Súsanna Sif Jónsdóttir – varastjórn

Við hjá Krafti erum ótrúlega stolt og ánægð af þessum glæsilega hópi einstaklinga og hlökkum til fjölbreyttra verkefna á  komandi starfsári sem verður auðvitað tekið af krafti!

Frá vinstri: Elín Sandra formaður, Guðni Þór aðalstjórn, Halla Dagný varastjórn,Linda Sæberg aðalstjórn, Súsanna Sif varastjórn og Gísli Álfgeirsson varastjórn. Inn á myndina vantar Arnar Svein Geirsson og Ragnheiði Guðmundsdóttur.