Kraftur leitar að starfsmanni, í 50 -70% starf til að hafa m.a. umsjón með fjáröflunarviðburðum og vefverslun félagsins ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Kraftur vill veita félagsmönnum sínum sem eru á leiðinni út í lífið aftur eftir veikindi tækifæri til að sækja um starfið áður en það verður auglýst frekar.
Helstu verkefni starfsmanns eru:
- Umsjón með vefverslun félagsins, innkaup og afgreiðsla pantana
- Umsjón, kynning og skipulagning á fjáröflunarviðburðum félagsins
- Aðstoða við aðra viðburði félagsins
- Aðstoð við samfélagsmiðla og heimasíðu
- Almenn upplýsingagjöf og þjónusta við félagsmenn
- Annast önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfshlutfalls starfsmanns
Við leitum að starfsmanni með:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða samstarfshæfileika
- Ríka þjónustulund og samkennd
- Góða tölvukunnáttu og reynslu í notkun samfélagsmiðla
- Skilyrði er að viðkomandi sé reyklaus
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til hulda@kraftur.org.
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Kraftur veitir félagsmönnum sínum andlegan, félagslegan og fjárhagslegan stuðning, miðlar upplýsingum um réttindi sjúklinga og aðstoðar þá við að komast út í lífið aftur.