Skip to main content

Félagsmönnum er boðið í helgarævintýri 26.-28.okt.

By 10. október 2018mars 25th, 2024Fréttir

Lífið er núna helgin er endurnærandi og uppbyggjandi helgi fyrir félagsmenn Krafts í samstarfi við KVAN þar sem þú færð tækifæri á að læra það hvernig þú getur tekist á við breyttar aðstæður í lífi þínu og kynnast öðrum í svipuðum sporum.

Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – einungis pláss fyrir 20 manns – skráðu þig strax í dag en um er að ræða frábæra helgi sem kostar einungis 2500 krónur á mann með öllu.

Saman munum við:

  • Læra hvernig við getum tekist á við breyttar aðstæður og nýta okkur styrkleika okkar til að byggja m.a. upp sjálfstraustið
  • Stunda útivist og skemmtilega hreyfingu
  • Stunda jóga
  • Fræðast um nánd í veikindum
  • Læra hvernig við getum rætt við börn um veikindi
  • Læra hvernig við getum átt jákvæð samskipti
  • Fá innsýn inn í það hvernig við getum nýtt okkur núvitund
  • Fá fræðslu um hvernig við getum náð markmiðum okkar

Þetta verður dásamleg helgi í fallegu umhverfi við borgarmörkin þar sem við munum líka borða hollan og góðan mat, vera með kvöldvökur og njóta þess að hafa gaman saman.  Helgin verður haldin í náttúruperlunni við Elliðavatn og gistum við tvær nætur á hótel Kríunesi

Allt – matur, fræðsla, skemmtun og gisting innifalin í staðfestingargjaldinu, 2500 krónum.

Hægt er að skrá sig hér – þetta er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi – Lífið er núna!