![](https://kraftur.org/wp-content/uploads/2024/04/434832370_407284982050655_1610056072738453017_n-1024x768.jpg)
Það var rífandi stemming í Lindakirkju í síðustu viku, en þar fóru fram tónleikar til styrktar Krafti. Það var hópur nemenda í viðburðarstjórnunarkúrs í HÍ sem langaði til að taka verkefni aðeins lengra, sem stóðu fyrir þessum glæsilegu tónleikum.
Starfsfólk Lindakirkju tók svo sannarlega þátt og lánaði kikjuna, prestinn, tækin, kórinn og kórstjórann sem var enginn annar en Óskar Einarsson. Óskar útsetti 8 lög með kórnum og þeim listamönnum sem komu fram. En það var hver snillingurinn á fætur öðrum Bubbi, Sigga Beinteins, GDRN, Diljá Péturs og IDOL hópurinn.
Það var fullt út úr dyrum og frábær stemming. Virkilega flott framtak hjá þessum öfluga hóp og vonum við svo sannarlega að þau fái 10 fyrir þetta verkefni. Við hjá Krafti erum þeim óendanlega þakklát fyrir að hafa gert þetta allt til styrktar félagsins. En allir sem tóku þátt gáfu vinnu sína. Þetta var ógleymanleg kvöldstund og frábært að fá að taka þátt í þessu fjöri.
Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu.
- DJ Dóra Júlía spilaði í upphafi tónleikanna.
- Eyrún og Guðbjörg forsprakka tónleikanna.
- Kór Lindakirkju setti tónleikana á annað levell undir dyggri stjórn Óskars Einarssonar kórstjóra.
- Diljá Pétursdóttir söng með kórnum. En hún einn yngsti meðlimur kórsins.
- Bubbi tók nokkur lög.
- GDRN söng ásamt Kór Lindakirkju.
- Guðni sóknarprestur í Lindakirkju var kynnir kvöldins.
- Sigga Beinteins tók nokkur lög.
- Listamennirnir fóru ekki tómhentir heim. Voru leystir út með gjöfum í þakklætisskyni.
- Anna Fanney IDOL stjarna.
- Jóna Margrét og Björgvin IDOL stjörnur.
- Stöð 2 mætti á svæðið og var í beinni.
- Hér má sjá hópinn sem stóð að þessu frábæra framtaki. Takk Björgvin Margeir Hauksson, Eydís Kristinsdóttir, Eyrún Sigþórsdóttir og Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir.