Skip to main content

Fyrir hönd þeirra nafnlausu kvenna sem gætu greinst í skimun

Í dag, alþjóðadegi gegn krabbameinum 4. febrúar, færði 31 kona Iðunni Garðarsdóttur, aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra undirskriftalista þar sem krafist er að breytingar sem áætlaðar voru varðandi brjóstaskimun yrðu endurskoðaðar.

Á tímabilinu 2015-2019 greindust árlega að meðaltali 31 brjóstakrabbamein hjá konum á aldrinum 40-49 ára og er það sá fjöldi sem mætti í heilbrigðisráðuneytið í dag. Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts, og Jónína Edda Sævarsdóttir, forsprakki undirskriftarsöfnunarinnar afhentu undirskriftarlistann, fyrir hönd hópsins.

„Eftir að hafa misst móður mína og ömmu báðar úr krabbameini ásamt því að konur mér nærri hafa greinst með krabbamein fyrir fertugt gat ég ekki hugsað mér að sitja hjá og horfa á þessar breytingar á skimunum kvenna. Mér fannst ég verða að gera eitthvað og þá datt mér í hug að setja af stað undirskriftalista til að mótmæla breytingunum,“ sagði Jónína Edda. Alls skrifuðu 37.291 einstaklingar undir listann þar sem krafist er endurskoðunar á nýjum ákvæðum um krabbameinsskimanir kvenna þ.e breyttan aldur í brjóstaskimun og breytingu á hversu mörg ár líða á milli leghálsskimana.

Um áramótin átti að færa neðri aldursviðmið brjóstaskimunar upp í 50 ár sem áður miðaðist við 40 ára aldur. Eftir að mikil umræða skapaðist um breytingarnar og ljóst með að almenn óánægja ríkti meðal Íslendinga ákvað Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða. „Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá konum. Á tímabilinu 2015-2019 greindust árlega að meðaltali 31 kona á aldrinum 40-49 ára með brjóstakrabbamein. Áætla má að þriðjungur þeirra meina greinist í skimun. Ef að aldurinn verður hækkaður upp í 50 ár þýðir það að þriðjungur kvenna greinist seinna. Það getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þær konur og nokkuð ljóst að í einhverjum tilfellum munu þær ekki lifa það af,“ segir Elín.

Til að sýna þetta myndrænt mættu 31 kona fyrir utan heilbrigðisráðuneytið við afhendingu listans. Þriðjungur kvennanna bar svarta húfu en restin appelsínugula. Þannig birtist táknmynd kvenna sem greinast með krabbamein fyrir fimmtugt og þeirra sem myndu jafnvel ekki greinast fyrr en það yrði of seint. Konurnar báru Lífið er núna húfurnar sem Kraftur hefur verið með í sölu til styrktar félaginu í vitundar- og fjáröflunarátakinu sínu sem lýkur með sjónvarpsútsendingu í sjónvarpi Símans í kvöld.

Konurnar sem sýndu samstöðu í dag

Dróna mynd tekin fyrir framan heilbrigðisráðuneytið