Skip to main content

Ganga fyrir Líf og Kraft yfir Vatnajökul og upp á Hvannadalshnúk

By 17. janúar 2020mars 25th, 2024Fréttir

Átakið Lífskraftur 2020 var kynnt í dag á blaðamannafundi í verslun 66° Norður í Faxafeni. Lífskraftur er yfirskrift átaks í útivist og hreyfingu, þar sem tilgangurinn er að safna áheitum fyrir félögin Kraft og Líf. 66°Norður er bakhjarl Lífskrafts. G. Sigríður (Sirrý) Ágústsdóttir stendur fyrir átakinu, en hún greindist með leg­hálskrabba­mein 2010 og aft­ur 2015. Í síðara skiptið var ljóst að krabbameinið var krónískt og töldu læknar að hún ætti eitt til þrjú ár eftir ólifað. Nú árið 2020 eru fimm ár liðin og Sirrý vill fagna þessum tímamótum og lífskrafti á óhefðbundinn hátt með því að:

Markmiðið með Lífskrafti 2020 er að safna áheitum fyrir Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans. Jafnframt að minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu eftir veikindi. Sirrý hefur með þessu verkefni sameinað ást sína á fjallgöngum og þá köllun sína að styðja við það þarfa og mikilvæga starf sem félögin Kraftur og Líf sinna í endurhæfingu einstaklinga sem gengið hafa í gegnum krabbameinsmeðferð.

„Ég fann lífskraft minn aftur á fjöllum eftir að hafa gengið í gegnum mikið reiðarslag sem fylgir því að greinast aftur með krabbamein. Það er ekki sjálfgefið að finna þennan kraft eftir slíkt áfall; vonbrigðin, sársaukinn og reiðin getur heltekið fólk. Mín leið til að takast á við erfiðar tilfinningar og veikindi var í gegnum hreyfingu í náttúrunni. Á fjöllum fann ég aftur lífskraftinn og með fjallgöngum styrkti ég líkama minn á nýjan leik. Mig langaði að deila þessari reynslu minni í von um að hún nýtist öðrum og fagna um leið. Fyrir mér er rétti staðurinn til að fagna þessum tímamótum á stærsta jökli landsins með vinkonum sem ég veit að styðja við bakið á mér þegar á móti blæs,“ segir Sirrý

Hægt er að styðja við Lífskraft með því að leggja inn á reikning 1161-26-9900, kt. 501219-0290, eða með AUR appinu í síma 789 4010.

Að ganga upp fjall og berjast við krabbamein eru ólíkar áskoranir, en hvort tveggja eru leiðangrar sem eiga það sameiginlegt að til þess að sigrast á þeim þarf að taka eitt skref í einu. Með göngunni yfir Vatnajökul og upp á Hvannadalshnúk vill Sirrý sýna á táknrænan hátt að hægt er að leysa úr erfiðum verkefnum ef hlúð er vel að huga og líkama og tekið er eitt skref í einu.

Sirrý hefur fengið til liðs við sig Snjódrífurnar en það eru góðar útivistarvinkonur sem ætla að slást í för með henni í þessum krefjandi leiðangri. Liður í Lífskrafti 2020 er einnig að hvetja konur um allt land til að taka þátt í Lífskraftsgöngu í sinni heimabyggð á meðan Sirrý og vinkonur hennar þvera Vatnajökul, en lagt er upp með að gangan taki níu daga. –Leiðangursstjórar yfir Vatnajökul og á Hvannadalshnjúk eru Vilborg Arna Gissurardóttir pól- og Everestfari og Brynhildur Ólafsdóttir Landvættaþjálfari og þrautreyndur fjallaleiðsögumaður.

Snjódrífurnar skipa auk Sirrýar, Brynhildar og Vilborgar; Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir, Guðrún Harpa Bjarnadóttir, Guðrún Ragna Hreinsdóttir, Heiða (Nikita) Birgisdóttir, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Hulda Hjálmarsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, Karen Kjartansdóttir, Soffía S. Sigurgeirsdóttir, Þóra Tómasdóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé.

Nánari upplýsingar er að finna á www.lifskraftur.is