Skip to main content

Gleðilegt nýtt ár

Kraftur óskar félagsmönnum, velunnurum, sjálfboðaliðum og öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina og ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða!

Við tökum fagnandi á móti nýju ári um leið og við kveðjum viðburðarríkt ár og vonum svo sannarlega að á árinu 2022 munu gefast fleiri tækifæri til að hittast, upplifa og knúsast meira.

Eins og undanfarin ár verður áherslan árið 2022 að styðja við félagsmenn okkar með jafningjastuðningi, fjárhagslegum stuðningi, markþjálfun, sálfræðiþjónustu og hagsmunabaráttu svo eitthvað sé nefnt. Þá munum við leggja ríkari áherslu á fræðslumál í formi fræðslu til fyrirtækja og skóla, hlaðvarps og útgáfu ýmiss fræðsluefnis.

Takk allir sem tóku þátt í þessu ævintýralega ári með okkur, studdu okkur, mættuð á viðburði hvort sem er rafræna eða í raunheimum, veittuð okkur innblástur eða hjálpuðuð okkur á einn eða annan hátt, án ykkar hefði árið ekki orðið eins eftirminnilegt. Samstaða og stuðningur er einmitt það sem skiptir svo miklu máli þegar við tökumst á við verkefni og áskoranir sem fylgja alvarlegum veikindum.

Við tökum á móti árinu 2022 með kærleika og fögnuð í hjarta 🌟

LÍFIÐ ER NÚNA 🧡