Skip to main content

Hátíðarvörur Krafts

Jólaálfar Krafts hafa sett saman fallega Hátíðarpakka sem eru á sérstöku hátíðarverði fyrir þessi jól.

Hin sanna hátíðargjöf; gæða ilmur, servíettur eða súkkulaði fyrir þig og þína og um leið stuðningur við gott málefni.
Smelltu þér á hátíðarpakka!

🎄 Lífið er núna – Hátíðarservíettur með áletruninni „Lífið er núna“ sem minnir okkur á að lifa í núinu.  Áletrunina er hægt að fá silfurlitaða eða gulllitaða. Dúnmjúkar servíettur, hannaðar og prentaðar í samstarfi við Reykjavík Letterpress.
🎁 Gómsætt súkkulaði frá Omnom. Hin fullkomna þrenning; Dark Nibs + Raspberries, Milk + Cookies og Spiced White + Caramel súkkulaðistykki.
🕯 Fallegt kerti með epla og kanil ilmi með skilaboðunum „hvenær er lífið ef það er ekki núna?“, unnið í samstarfi við Töru Tjörva. Kertið kemur í fallegri öskju og er með loki. Kertið er umhverfisvænt og náttúrulegt soya kerti, brennslutími er 55 klst.