Skip to main content

Krabbamein kemur öllum við!

By 23. janúar 2018mars 25th, 2024Fréttir

Nú stendur yfir átak Krafts, Krabbamein kemur öllum við, en það hófst þann 17. janúar og lýkur þann 4. febrúar.  Tilgangur átaksins er að vekja athygli á málefnum ungs fólks með krabbamein og aðstandenda og afla fjár til að halda úti þjónustunni sem félagið veitir. Með átakinu vill Kraftur benda á þá staðreynd hvað krabbamein snertir marga með einum eða öðrum hætti. Ár hvert greinast 70 einstaklingar á aldrinum 18-40 ára með krabbamein og þess má geta að þriðjungur Íslendinga fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni.

Það  alltaf mikið áfall fyrir ungan einstakling að greinast með krabbamein – og ekki síður er það áfall fyrir fjölskyldu hans og vini. Þá skiptir máli að félag eins og Kraftur sé til staðar og geti stutt fólk í þessum sporum. Hvort sem um er að ræða sálfræðiþjónustu, jafningjastuðning, endurhæfingu, fjárhagslegan stuðning eða styrk til lyfjakaupa.

Krabbamein kemur öllum við og til að sýna fram á það fékk Kraftur í lið með sér 22 einstaklinga til að stíga fram og deila þeirri reynslu hvernig krabbamein hefur snert þá. Birtar eru myndir af þessum ólíku einstaklingum með sín skilaboð skrifuð á spjald á samfélagsmiðlum á meðan á átakinu stendur. Liður í átakinu er hvatning til almenning að deila af sinni reynslu til að sýna enn fremur fram á hvað krabbamein snertir marga – hægt er að nota #krabbameinkemuröllumvið.

Fjáröflunarverkefni átaksins felst í því að selja nýtt perluarmband með slagorðinu Lífið er núna sem selt verður í átakinu okkar á meðan birgðir endast. Á lokadegi átaksins, 4. febrúar, á alþjóðadegi gegn krabbameini ætlar Kraftur að setja Íslandsmet í perlun armbanda í Hörpunni. Er það ákall okkar til þjóðarinnar að sem flestir leggi hönd á plóg og styðji við bakið á ungu fólki sem greinist með krabbamein og aðstandendum.