Skip to main content

Kraftur í fréttum – Það er dýrt að greinast með krabbamein

By 22. mars 2014mars 25th, 2024Fréttir

Fréttirnar voru tvær. Sú fyrri er viðtal við Halldóru Víðisdóttur, formann Krafts, um kostnaðarþátttöku krabbameinssjúklinga í heilbrigðiskerfinu – Það er dýrt að greinast með krabbamein.

Síðari fréttin er viðtal við Bjarka Má Sigvaldason og kærustu hans Ástrósu Rut Sigurðardóttur. Bjarki greindist með ristilkrabbamein í lok árs 2012. Í viðtalinu segir hann frá þeim kostnaði sem hann hefur þurft að greiða úr eigin vasa vegna krabbameinsmeðferðar sinnar.Hræðileg tilfinning að hafa ekki efni á lyfjunum.

Á 15 ára afmælisári Krafts stendur til að stofna neyðarsjóð fyrir ungt krabbameinsveikt fólk til að létta þeim byrðarnar. Stofnun neyðarsjóðs Krafts verður afmælisgjöf Krafts til félaga sinna á 15 ára afmæli félagsins.