Skip to main content

Kröftug kvennastund í Sykursal, Grósku.

By 17. október 2023október 27th, 2023Fréttir

Í tilefni af bleikum október stendur Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fyrir viðburðinum; Kröftug kvennastund, fimmtudaginn 26. október milli klukkan 17:00 og 19:30. Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu.

Fram koma:

Sunna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri greindist með mergæxli fyrir tveimur árum, 37 ára gömul. Hún hefur frá upphafi sagt á einlægan og opinskáan hátt frá sínum veikindum, m.a. á samfélagsmiðlum og í Kraftsblaðinu.

Iðunn Björk Ragnarsdóttir móðir og nemi í fatasaumi sem greindist með Hodgkins eitlakrabbamein á unglingsárum. Iðunn hefur talað opinskátt um reynslu sína og áhrif krabbameinsins á vegferð hennar í lífinu.

Berglind Häsler eigandi Havarí, starfsmaður þingflokks VG og ekkja Svavars Pétur Eysteinssonar sem lést úr krabbameini á síðasta ári. Berglind og Svavar vöktu athygli fyrir viðhorf sín til verkefnisins og opinskáa umræðu um krabbameinið og öllu því sem því fylgdi.

Saga Garðarsdóttir uppistandari mun einnig stíga á stokk.

Í lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni.

Um fundarstjórn sjá Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks sem hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna.

Þetta verður söguleg og mögnuð kvennastund en ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. Við biðjum þig að skrá þig hér.