Skip to main content

Leitum að kraftmiklum starfsmönnum

By 14. september 2022Fréttir

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, leitar að drífandi einstaklingum með hjarta fyrir málstaðnum. Leitum að viðburða- og fjáröflunarfulltrúa sem og markaðs-og kynningarfulltrúa í 100% starf.

Viðburða- og fjáröflunarfulltrúi

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Umsjón með vefverslun félagsins, innkaupum og afgreiðslu pantana og söluvarnings í verslanir
  • Umsjón með uppgjöri og birgðaskráningu söluvarnings félagsins
  • Umsjón, kynning og skipulagning á fjáröflunarviðburðum félagsins
  • Koma að þróun vefverslunar og framleiðslu á nýjum styrktarvörum
  • Umsjón með viðburðum og dagskrá félagsins er snýr að félagsmönnum
  • Umsjón með kynningu styrktarvarnings og viðburðum á samfélagsmiðlum félagsins
  • Almenn upplýsingagjöf og þjónusta við félagsmenn
  • Annast önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfshlutfalls starfsmanns
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
  • Reynsla af bókhaldi er kostur
  • Reynsla af fjáröflun er kostur
  • Góð almenn tölvufærni, þekking og reynsla af samfélagsmiðlum og samfélagsmiðlaauglýsingum kostur.
  • Hjarta fyrir málstaðnum
  • Hugmyndaauðgi, drifkraftur og jákvæðni
  • Skilvirkni og nákvæm vinnubrögð
  • Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni

Umsóknarfrestur er til og með 21.september næstkomandi.

Markaðs – og kynningarfulltrúi

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á markaðs- og kynningarstarfi Krafts
  • Umsjón með vitundarvakningum félagsins
  • Umsjón með vef og samfélagsmiðlum félagsins
  • Fréttir og almannatengsl
  • Kemur að útgáfu og kynningarefni félagsins
  • Umsjón með textagerð/prófarkalestur fyrir markaðs- og útgáfuefni félagsins
  • Ábyrgð á viðburðum er varðar markaðs- og kynningarstarf félagsins
  • Önnur tilfallandi störf samkvæmt óskum framkvæmdastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum er kostur
  • Reynsla af textaskrifum og miðlun upplýsinga
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
  • Góð tölvukunnátta, þekking á innsetningu efnis á heimasíður og samfélagsmiðla
  • Þekking á birtingu stafrænna auglýsinga
  • Þekking á Indesign/photoshop er kostur
  • Hugmyndaauðgi, drifkraftur og jákvæðni
  • Skilvirkni, nákvæm vinnubrögð og sveigjanleiki
  • Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni
  • Hjarta fyrir málstaðnum

Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2022.