
Gleðilegt sumar kæru félagsmenn – Við erum mjög spennt fyrir komandi sumri með ykkur
Það eru skemmtilegir hlutir á dagskrá hjá okkur í maí-mánuði! Við vonum að sem flestir sjái sér fært að taka þátt og hlökkum til að eiga góðar stundir með ykkur. Við ætlum að fá góðar ráðleggingar frá Kristínu Þórsdóttur, markþjálfa, þegar við bjóðum AðstandendaKrafti í heimsókn, njótum í núinu með StelpuKrafti og bjóðum fjölskyldunni í Fölskyldu- og húsdýragarðinn.
AÐSTANDENDAKRAFTUR: Miðvikudaginn 14. maí, kl.19:00-21:00 – Kristín Þórsdóttir, markþjálfi, ætlar að hitta okkur í Krafti og fjalla um nánd í samböndum í kjölfar krabbameinsgreiningar. Eitthvað sem snertir marga en á það til að vera sópað undir teppið! Erindið er hugsað bæði fyrir krabbameinsgreinda félagsmenn og aðstandendur – við viljum endilega sjá sem allra flesta og hvetjum ykkur til að draga makann með ykkur – Viðburðurinn verður haldinn hjá Krafti í Skógarhlíð 8. SKRÁNING ER NAUÐSYNLEG
STELPUKRAFTUR: Miðvikudaginn 21. maí, kl.19:00-21:00 – Við núllstillum líkamann með Sigrúnu frá Happy hips – Sigrún heldur regluleg námskeið sem eru sérstaklega hugsuð fyrir þá sem glíma við kvilla í sogæða-, stoð-, eða taugakerfinu. Á námskeiðinu fáum við fræðslu um hvernig hægt er að núllstilla líkamann og losa um spennu sem stelur orkunni frá manni.
FJÖLSKYLDUFJÖR: Fimmtudaginn 29. maí, kl.11:00 – Það jafnast ekkert á við það að eiga góða stund í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum með sínu besta fólki. Kraftur býður félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra að eiga góða stund á Uppstigningardag í garðinum. Starfsmaður frá Krafti verður á vappi og býður upp á smá nestispakka í kringum hádegi! SKRÁNING ER NAUÐSYNLEG