Föstudaginn 6. janúar sl. mættu góðir gestir til Krafts. Þetta voru fulltrúar frá Medis sem er eitt af dótturfyrirtækjum Teva Pharmacuetical og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti. Fyrirtækið tók þá ákvörðun að styrkja Kraft með sömu upphæð og hefði annars farið í jólagjafir til viðskiptavina. Hulda Hjálmarsdóttir, formaður Krafts, tók á móti myndarlegum styrk úr hendi Þóris Hall á skrifstofu Krafts. Félagið sendir Medis kærar þakkir fyrir styrkveitinguna.