Skip to main content

Mikill fjöldi fólks perlaði með Krafti

By 19. janúar 2017mars 25th, 2024Fréttir

Laugardaginn 14. janúar sl. biðlaði Kraftur til almennings um að hjálpa félaginu að perla armbönd sem seld eru til styrktar starfseminni. Opið hús var á Kexinu frá 12.00 – 17.00 og mættu um 200 manns og perluðu armbönd. Á tímabili urðum við að bera inn borð af útisvæðinu á Kex til að allir fengju sæti. Heilu fjölskyldurnar mættu og mátti sjá fólk á  öllum aldri perla saman. Við lauslega athugun má ætla að á bilinu 1000 – 1500 armbönd hafi verið perluð og eru stjórnarmenn Krafts, vinir og vandamenn, í óðaönn að binda þau saman og pakka. Sala á armböndunum hefur gengið vonum framar og erum við hjá Krafti innilega þakklát öllum þeim sem lögðu okkur lið á laugardaginn var og þeim fjölmörgu sem hafa styrkt okkur með því að kaupa armböndin sem fást í vefverslun félagsins https://kraftur.org/vefverslun/.