![](https://kraftur.org/wp-content/uploads/2017/04/lions-1024x768.jpg)
Krafti barst veglegur styrkur frá Lionsklúbbnum Fjörgyn. Nokkrir félagar klúbbsins mættu á skrifstofu Krafts og afhentu okkar kr. 100.000 sem framlag í Neyðarsjóð Krafts. Þetta er sérstaklega kærkomin gjöf þar sem nýlega bárust 8 umsóknir í neyðarsjóðinn frá ungu fólki sem er illa statt vegna hárrar kostnaðarþátttöku í heilbrigðiskerfinu. Kraftur færir Fjörgyn sínar innnilegust þakkir fyrir styrkinn. Á myndinni eru frá vinstri: Hjálmur St. Flosason, Eggert J. Levy, Guðmundur Helgi GunnarssonRagnar Gunnarsson, Guðmundur Harðarson, Vigfús Þór Árnason og Ragnheiður Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.