Úthlutað verður úr Neyðarsjóði Krafts núna í apríl. Umsóknarfrestur er til og með 1.apríl. Neyðarsjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og lent hefur í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna. Neyðarsjóðurinn er ætlaður til að standa straum af læknis- og lyfjakostnaði sem og öðrum kostnaði sem getur hlotist ef veikindum viðkomandi.
Nú er hægt að sækja um rafrænt. Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:
a. Læknisvottorð þar sem fram kemur staðfesting á sjúkdómnum og hvenær viðkomandi greindist.
b. Kvittanir og reikninga vegna læknis- og/eða lyfjakostnaðar.s.l tvö ár.
c. Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára
Ef viðkomandi ætlar að sækja um niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði þarf sá hinn sami að skila inn vottorði frá lækni um að kostnaðurinn sé kominn til vegna veikinda eða meðferðar.
Nánari upplýsingar um neyðarsjóðinn gefur Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri, í síma 866-9600 eða með því að senda tölvupóst og einnig má sjá meira um neyðarsjóðinn hér.
Hægt er að fá aðstoð við útfyllingu umsóknar hjá starfsmanni Krafts eða félagsráðgjafa.