Skip to main content

Núvitundarpartý í Hörpu

By 4. september 2019mars 25th, 2024Fréttir

Kraftur í samstarfi við Yoga Shala og Yoga Moves verður með einstakan núvitundarviðburð í Hörpu. Komum saman og fáum geggjaða útrás í dansi, jóga, hugleiðslu og tónheilun. Saman eflum við lífskraftinn og njótum þess að vera í núinu. Fram koma DJ Margeir, YAMAHO, Tómas Oddur og Ingibjörg Stefáns jógakennari og fleiri góðir gestir.

Lífið er núna eru einkennisorð Krafts og minnir okkur á að gleðjast yfir þeim sigri að fá að lifa í andartakinu „núna“. Er lífið ekki þess virði að við gefum okkur tíma og rými til að fagna því sérstaklega, eitt andartak?!

Núvitundarpartýið er haldið í tilefni af 20 ára afmæli Krafts og rennur allur ágóði af því í starf Krafts í þágu ungs fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Þú þarft bara að mæta í þægilegum fötum og með jógadýnu með þér og við leiðum þig inn í núið og vellíðan.

Njóttu þess að styrkja gott málefni og koma í núið.

Allir sem fram koma að viðburðinum gefa vinnu sína. Komdu í núið og styrktu gott málefni í leiðinni – Miðasala er á www.harpa.is