Skip to main content

Páskabingó Krafts

By 16. apríl 2025Fréttir

Páskarnir eru á næsta leiti og það þýðir auðvitað eitt – páskabingó Krafts! Viðburðurinn var haldinn með pompi og prakt í húsnæði Krafts að Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 15. apríl. Félagsmenn Krafts og fjölskyldur þeirra fylltu salinn og nutu samverunnar, en yfir 100 manns mættu.

Glæsileg páskaegg frá Nóa Síríus og Góu biðu þeirra sem fengu BINGÓ og bingóstjórarnir voru engir aðrir en stórsnillingarnir Dísa og Júlí sem héldu uppi fjörinu með sínum einstaka sjarma. Sumir voru heppnari en aðrir og hlutu vinninga, en öll börnin fengu sælgætispoka í boði Nóa Síríus eftir viðburðinn – og svo var haldið veglegt pizzapartý sem allir nutu.

Að sjálfsögðu var viðburðurinn ókeypis fyrir félagsmenn og fjölskyldur og virtust allir skemmta sér konunglega.

Við vonum að þið eigið gleðilega páska framundan og þökkum öllum kærlega fyrir komuna í páskabingóið.

Sérstakar þakkir færum við Nóa Síríus, Góu og Dominos fyrir að styrkja viðburðinn. Við gætum ekki haldið svona skemmtilega viðburði án stuðnings góðra bakhjarla.

Close Menu