Skip to main content

Perlað af Krafti á aðventunni

By 30. nóvember 2019mars 25th, 2024Fréttir

Kraftur stendur fyrir sérstökum perluviðburði á Icelandair Hótel Natura á Nauthólsvegi á fyrsta í aðventu, þ.e. sunnudaginn 1. desember milli klukkan 13 og 17. Þetta er lokahnykkurinn í afmælisári Krafts og þar með tólfti og síðasti viðburður ársins.

Þú getur lagt hönd á perlu á aðventunni og þar með hjálpað okkur að hjálpa ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Við bjóðum unga sem aldna velkomna á en armböndin eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Njóttu þess að gefa af þér í aðdraganda jólanna en allur ágóði af sölu armbandanna rennur í starfsemi félagsins. Afmælisarmbandið verður í forsölu á staðnum en þau koma í takmörkuðu upplagi og eru með áletruninni „Lífið er núna“. Tilvalin jólagjöf sem gefur af sér.

Á viðburðinum verðum við með ýmis skemmtiatriði svo sem hljómsveitin Ylja, Prins Jóló og Lalli Töframaður. Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.

KOMDU OG PERLAÐU AF KRAFTI ???

Endilega meldaðu þig á Facebook