Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla armbönd sunnudaginn 21. janúar í Hörpu í tilefni af vitundarvakningu félagsins.
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu núna í janúar og er hluti af okkar árlegu fjáröflunar- og vitundarvakningu.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Við höfum fengið Evu Ruzu og Hjálmar Örn með okkur í lið og ætla þau að halda uppi stuðinu allan daginn. Við eigum svo von á góðum gestum á svæðið.
Fram koma:
- Jón Jónsson og Friðrik Dór
- Guðrún Árný
- Lára og Ljónsi
- og fleiri góðir gestir.
Veitingar í boði:
- Joe and the juice
- Ó. Johnson og Kaaber
- KH veitingar
Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Hörpu.
Perlunin fer fram í Flóa á fyrstu hæð Hörpu það verður opið hús frá klukkan 13 til 17. Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið