Skip to main content

Perlað af Krafti á Selfossi

Kraftur lagði leið sína austur fyrir fjall á dögunum og var svo sannarlega perlað af Krafti í góðu samstarfi með Krabbameinsfélagi Árnessýslu.

Það var heldur betur líf og fjör í Sunnulækjarskóla síðast liðinn þriðjudag, þar sem uþb. 140 mann mættu á svæðið og perluðu um 820 armbönd.

Almar bakari sá til þess að enginn fór svangur heim og hafi þau miklar þakkir fyrir það.

Þetta var frábær skemmtun og ekki síður mikilvægt fyrir okkur í Krafti, takk allir sem mættu.