Skip to main content

Perlað með Krafti í Keflavík

By 26. september 2017mars 25th, 2024Fréttir

Kraftur ætlar að perla með Suðurnesjunum laugardaginn 30.september í Keflavík, í húskynnum Rauða krossins Smiðjuvöllum (við Iðavelli) milli kl. 13 – 17.

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
Við óskum eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armbönd eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband ♥ En allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbmein og aðstandendur.

Sjálfboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 á laugardaginn í Rauðakrosshúsið við Iðavelli og perlað með okkur.
Hér er hægt að sjá viðburðinn á Facebook.

Það mun vera heitt á könnunni og tökum vel á móti ykkur ?

KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥