Skip to main content

Perlað með Krafti á Selfossi

By 2. mars 2017mars 25th, 2024Fréttir

Kraftur ætlar að að halda perlustund á Selfossi og ekki seinna vænna þar sem armböndin okkar eru enn og aftur farin að klárast. Ætlum við að perla saman í húskynnum Fjölheima við Tryggvagötu á Selfossi milli kl. 13 – 17 á sunnudaginn og óskum við eftir ykkar aðstoð!

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru litrík og falleg og auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt. Þau eru öll perluð í sjálfboðavinnu og því óskum við eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.

Sjálboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 á stunnudaginn í Fjölheima við Tryggvagötu og perlað með okkur.

Það mun vera heitt á könnunni, hlökkum til að sjá ykkur.

KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥